Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÆÐSLA > Fjarskipti
S
M
Þ
M
F
F
L
27
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

11
12
13
14
15
16
17

18
19
20
21
22
23
24

25
26
27
28
29
30
31

1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp

Hjartaáfall


 
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.  

 

Einkenni 

  • Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
  • Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak. 
  • Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
  • Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.

 

Skyndihjálp

  • Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
  • Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
  • Hagræða honum í þægilega stöðu.
  • Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
  • Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.

 

Hjartakveisa
Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku. 

 

 

TETRA, VHF (very high frequency) (UHF)

 

Kallmerki:

Kallmerki eru notuð til að aðgreina einstaklinga, verkþætti og vinnuhópa hvern frá öðrum.  Hver björgunarsveit hefur sitt eigið kallmerki.  Kallmerki Björgunarsveitarinnar Brákar er BRÁK.

 

Bílarnir hafa kallmerkin:

  • Brák 1 (Fordinn),
  • Brák 2 (hvíti Land Cruiser)
  • Brák 3 (blái Land Cruiser)

 

Hver einstök talstöð hefur svo sitt eigið kallmerki sem kennd er við viðkomandi björgunarmann hverju sinni.  T.d. er kallmerki talstöðvar sem Ásgeir notast við: BRÁK-Ásgeir.  Til að kalla í stjórnstöð skal nota kallmerkið BRÁK stjórnstöð. Nema annað sé sérstaklega tekið fram og er það þá kynnt sérstaklega í byrjun aðgerðar.

 

Talstöðvarsamskipti:

Þegar talað er í talstöð er mikilvægt að  halda hljóðnemanum nokkra sentimetra frá munninum og ekki byrja að tala fyrr en 2-3 sekúndum eftir að ýtt er á senditakkann.  Ekki reyna að grípa fram í fyrir aðila sem byrjaður er að tala, það eina sem gerist við það er það að þú tapar af skilaboðunum frá viðkomandi.  Ef maður er að kalla í tíðni sem margir nota er algjörlega nauðsynlegt að nota kallmerkin.

 

Dæmi um samskipti í gegn um talstöð:

 BRÁK-1!, BRÁK-Stjórnstöð kallar!

 BRÁK-1! svarar Brák-Stjórnstöð!

 BRÁK-1! Það sást síðast til mannsins við leitarkofann, hann var með  veiðistöng og var að gangi niður að vatninu.

 BRÁK-stjórnstöð! Við könnum málið.

 BRÁK-1! skilaboð móttekin.