Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÆÐSLA > Fjallamennska
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

Heilræði

Skyndihjálp

Hjartaáfall


 
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.  

 

Einkenni 

  • Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
  • Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak. 
  • Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
  • Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.

 

Skyndihjálp

  • Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
  • Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
  • Hagræða honum í þægilega stöðu.
  • Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
  • Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.

 

Hjartakveisa
Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku. 

 

 

Þegar talað er um miðhálendið, er yfirleitt miðað við landsvæði ofan 400 m hæðar yfir sjó. Þetta svæði nær yfir u.þ.b. 76% af flatarmáli landsins alls. Við köllum hálendið líka óbyggðir, enda búa fáir ofar framangreindra marka.  Helstu nafngreindu svæði hálendisins eru Kaldidalur, Kjölur, Sprengisandur, Ódáðahraun, Brúar- og Vesturöræfi, Lónsöræfi og Landmanna- og Síðuafréttur.

Því miður hafa allt of fáir lagt leið sína á þessar slóðir og misst af þeim góðu áhrifum, sem öræfin hafa á fólk. Þarna uppi er ekki eintóm og tilbreytingalaus eyðimörk eins og margir halda. Landslag er víðast ákaflega  fagurt og fjölbreytt og þar er líka að finna einstakar vinjar, græna perlur, í grárri auðninni.

Hálendið skiptist í jökulsorfið landslag og jökulöldur, sanda, hraun, vötn og jökla. Gróðurvinjar eru einungis þar sem vatn er í nánd. Sums staðar í skjóli fyrir köldustu vindáttunum er að finna hágróður allt upp í 700 m hæð yfir sjó.

Ferðalög á miðhálendinu voru tíð á söguöld en síðan fór að draga úr þeim, þegar hjátrú magnaðist, og lengi lágu ferðalög niðri, eða allt fram á 18.öld. Nú á dögum er ferðast um hálendið allt árið.  Vegakerfið er víða orðið fært öllum tegundum farartækja á sumrin, einkum fyrir tilstuðlan Landsvirkjunar. Margir, sem hafa ánetjast hálendinu, fá enga aðra úrlausn en að vera þar reglulega á ferðinni. Þetta er eins og ólæknandi sjúkdómur, sem er hægt að halda í skefjum með réttum lyfjum.

 

Kjalvegur  nat
Kaldidalur
Veiðivötn
Lakagigar
Sprengisandur (4x4)
Fjallabak syðra/Miðvegur ( 4x4 )
Fjallabak nyrðra (4x4)
Gæsavatnaleið 4x4
Dyngjufjöll-Askja (4x4)
Snæfell (4x4)
Lónsöræfi (4x4)
Kárahnjúkar (4x4)

 

 

Gönguleiðir á íslandi:

 Allt landið (nat.is)

 

Heimildir:

  Nat Norðurferðir á vefslóðinni www.nat.is - október 2007