Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5

6
7
8
9
10
12

13
14
15
16
17
18

20
21
22
23
24
25
26

27
28
29
30
31
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Fréttir
12.5.2012 18:07:00

Á aðalfundi Faxaflóahafna sf. í gær var undirritaður samningur Faxaflóahafna sf. við Landsbjörg, Björgunarbátasjóð Reykjavíkur og fjórar björgunarsveitir við Faxaflóa um styrk við starfsemina næstu fimm árin.

Undirritað af:    EBM
Meira...
Fréttir
6.5.2012 10:06:00

Björgunarfélag Akranes ætlar að halda svokallaða Bátamessu laugardaginn 19.maí.

Undirritað af:    EBM
Meira...
Fundir
24.4.2012 12:37:00

Hér er aðalfundagerð björgunarsveitarinnar Brákar 2012. Til að lesa fundargerðina smellið á hnappin "meira" 

Fréttir
24.4.2012 12:01:00

Björgunarskólinn minnir á Stöðumat, laugardaginn 28. apríl í Borgarnesi.

Þú tekur sjálfsmat inn á fjarnámsvef skólans, http://bjorgunarskoli.landsbjorg.is/ ef niðurstaðan er 7 í einkun eða hærri þá átt þú erindi í Stöðumat.

Skráning á http://skoli.landsbjorg.is eða með því að senda tölvupóst á skoli@landsbjorg.is

Vonumst til að sjá sem flesta

Kv. Starfsfólk Björgunarskóla SL

 

Undirritað af:    EBM
Meira...
Fréttir
2.4.2012 13:09:00

Brák, Elliði, Heiðar og OK ætla að fara í sameignlega til Reykjavíkur.

 

Brottför er kl:1600 frá Pétursborg þriðjudaginn 3 apríl.

 

Farið verður í 66° þar sem verður kynning á vörum og afslættir í boði.

 

Sérstök kynning á nýja björgunarsveitagallanum.

 

Einnig verður farið í heimsókn til björgunarsveitar á höfuðborgsvæðinu

 

Allir áhugasamir velkomnir

 

Fréttir
31.3.2012 09:59:00

Aðalfundur björgunarsveitarinar Brákar verður haldinn 11. apríl 2012 í húsi Brákar, Pétursborg í Brákarey.

 

 

 

 

 

 

Félagar í Brák, 2007. Jón, Ásgeir og Gummi Finnur

 

 

 Aðalfundarboð björgunarsveitarinar Brákar má finna hér

 

Undirritað af:    ÞEB
Meira...
Fréttir
21.3.2012 01:46:00

Þann 11. apríl næstkomandi verður aðalafundur Björgunarsveitarinnar Brákar haldinn í Pétursborg, en fundurinn verður kynntur betur síðar.

 

Nú liggur fyrir að a.m.k. 3-4 stjórnarmeðlimir eru á leið úr stjórn og því er óskað eftir framboðum, m.a. til formennsku. Á aðalfundinum verður kosið um formann og svo um aðra stjórnarmeðlimi. Skipta svo kjörnir aðilar með sér verkum.

 

Allir áhugasamir eru hvattir til að gefa kost á sér, enda er þátttaka í stjórnarstörfum kjörið tækifæri til að hafa áhrif á framtíðarstörf og stefnur sveitarinnar. Reynsla af stjórnarstörfum, aldur og fyrri störf er ekki aðalmálið í þessu, heldur áhugi til að vinna í þágu sveitarinnar að góðum málum.

 

Áhugasömum er bent á að hafa samband við einhvern stjórnarmeðlima til að tilkynna framboð.

 

Í stjórn eru:

 

Pétur Guðmundsson, formaður - s. 894-8830

Jóhannes B. Jónsson varaformaður - s. 869-5383

Guðrún Kristjánsdóttir, gjaldkeri -s. 892-4900

Erlendur Breiðfjörð, ritari - s. 866-6520

Fannar Þór, meðstjórnandi - s. 616-1126

Þorgerður Erla, varamaður - s. 691-1873

 

F.h. stjórnar,

 

Jóhannes B.

 

 

 

 

 

 

Fréttir
21.3.2012 01:38:00

Fyrirhugað er að halda æfingu í Borgarfirði næstkomandi laugardag 24. mars að frumkvæði hestahópsins, Leitarhesta Borgarfjarðar.

 

Hestahópurinn mun taka þátt og verða verkefni að einhverju leyti sniðin að þeim. Annars er um venjulega æfingu að ræða.

 

Félagar Brákar eru hvattir til að taka þátt, því hér er kjörið tækifæri til að reyna, bæta við og skerpa á okkar kunnáttu.

 

Skráning hjá Erlendi Breiðfjörð í s. 866-6520 í síðasta lagi kl. 18 á fimmtudag, 22. mars.

 

Æfinganefndin

 

 

Janúar: Verðmætabjörgun í Norðurárdal - kjúklingur

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp 

Að hindra lost

 

Losthætta er alltaf til staðar í slysum sérstaklega ef um stóra áverka er að ræða eins og miklar blæðingar, lemstranir, brjóstholsáverka, kviðarholsáverka, innvortis blæðingar og stór brunasár.

 

Til að draga úr losthættu:

  1. Leggið slasaðan með höfuð lægra en fætur til að auka blóðstreymi til hjartans.
  2. Farið varlega með sjúkling og veitið fyrstu hjálp.  Óvarkárni í meðferð eykur losthættu.
  3. Gefið ekki að drekka en væta má varir ef sjúklingur kvartar undan þorsta.
  4. Talið rólega við hinn slasaða og segið honum að hjálp sé á leiðinni.
  5. Verjið gegn kulda.
  6. Fylgist vel með púls og öndun