Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

Heilræði

Skyndihjálp 

Blástursaðferðin

 

Ef sjúklingur andar ekki þarf að byrja á því að tryggja að öndunarvegur sé ekki stíflaður (kanna hvort aðskotahlutur eða tunga hindri loftstreymi til lungna) og fjarlægja stíflu ef svo er og einnig þarf maður að vera viss um að æðasláttur sé til staðar, ef enginn æðasláttur finnst verður að beita hjartahnoði.

 

Ef slasaður andar ekki þá:

  1. Opna öndunarveg
  2. Dragið að ykkur hreint loft
  3. Lokið nefi sjúklings og blásið ákveðið inn um munn hans. Lokið munni hans ef blásið er í nef.
  4. Sjáið brjóstkassann lyftast, það sýnir að loft hefur komist í lungun.
  5. Lyftu höfði þínu frá andliti sjúklingsins og horfðu á brjóstkassann hníga á meðan þú dregur að þér loft.
  6. Endurtaktu þetta 12-15 sinnum á mínútu.  Mundu að draga að þér hreint loft á milli blástra
  7. Ef hinn slasaði er kornabarn, blástu þá varlega, munnfylli lofts er nóg til að fylla lungu barns. Hjá kornabörnum er blásið um munn og nef í einu.
10. janúar 2012 02:05

Námskeið framundan

Framundan eru tvö námskeið sem haldin verða í húsnæði okkar í Brákarey.

Miðvikudagskvöldið 25. janúar verður boðið upp á fyrirlesturinn "Björgunarmaður í aðgerðum" en um er að ræða fyrirlestra sem aðgengilegir eru á vef Björgunarskólans. Þeir verða sýndir á tjaldi í Pétursborg. Námskeiðið er hluti af náminu fyrir björgunarmann 1. Námskeiðið hefst kl. 20:00.

 

Dagana 27-28. janúar (föst.-lau.) verður námskeiðið "Snjóflóð 1" haldið í Pétursborg, en það er einnig hluti af björgunarmanni 1. Það hefst með fyrirlestri á föstudagskvöldi og svo eru verklegar æfingar utandyra á laugardegi þar sem snjóflóðaleit er æfð, notkun snjóflóðaýla o.fl. Námskeiðið hefst kl. 19:00 á föstudeginum og verður lokið fljótlega e.h. á laugardeginum. 

Skráning hjá Jóhannesi í 869-5383 eða í johannesbj@gmail.com.

 


meira...
3. janúar 2012 03:06

Þrettándabrenna Bjsv. Brákar og Borgarbyggðar

 

Við minnum jafnframt á flugeldasöluna í Brákarey sem verður opin milli kl. 12 og 16 á föstudag.


meira...
13. desember 2011 08:05

Fjölskyldudagur Bjsv. Brákar framundan

15. nóvember 2011 10:29

Námskeið framundan

Næstkomandi miðvikudagskvöld, 16. nóvember, verður námskeiðið "Óveður og björgun verðmæta" haldið í Pétursborg. Hefst það kl. 19:30 og er c.a. 3 tímar. Námskeiðið er hluti af björgunarmanni 2. Kennarar eru Magnús Örn Hákonarson og Björgvin Herjólfsson. Skráning hjá Jóhannesi í s. 869-5383.

 

Fimmtudagskvöldið 17 nóvember verður svo bókhlegur hluti námskeiðsins "Rötun" haldið í Pétursborg. Námskeiðið hefst kl. 19:00, og kennari er Sæunn Kjartansdóttir. Verklegur hluti námskeiðsins verður haldinn einhvern laugardaginn á næstunni og verður hann auglýstur síðar. Skráning hjá Pétri í s. 894-8830.


meira...
26. október 2011 11:56

Ný vetrardagskrá Brákar komin á vefinn

Kæru félagar

 

Nú er búið að setja dagskrá vetrarins 2011-2012 inn á heimasíðu Brákar. Dagskrána má sjá undir liðnum "Félagið" og þar má velja "Vetrardagskrá" valstiku á vinstri hluta síðunnar. Til einföldunar getið þið bara smellt hér

 

Félagar eru hvattir til að sýna sig og sjá aðra á viðburðum og námskeiðum vetrarins og halda þannig uppi góðu starfi sem er mikilvægt hverri björgunarsveit.

 

Kveðja,

 

Stjórnin


meira...
25. september 2011 01:54

Veturinn handan við hornið

Sælir allir okkar elskulegu félagar og aðrir aðdáendur!

 

Nú er farið að hausta og rétta- og skotveiðitímabilið gengið í garð sem þýðir það að fólk fer að streyma til fjalla í leit að útrás fyrir uppsafnaða gremju sumarsins. En við hjá Brák fögnum hausti og vetri því þá fer starfið hjá okkur að lifna við og sólbrúnir félagar á sandölum ganga fylltu liði í Brákareyna og undirbúa sig fyrir komandi fjör!

 

 


meira...
31. maí 2011 11:17

Útifjör á Sjómannadaginn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


meira...
20. apríl 2011 11:40

Aðalfundur Brákar 2011

Aðalfundarboð 2011

 

Aðalfundur björgunarsveitarinnar Brákar verður haldinn miðvikudaginn 04. maí í Pétursborg, húsi sveitarinnar í Brákarey klukkan 19:30.

 

Dagskrá fundarins:

Venjuleg aðalfundarstörf

Kostning stjórnar

Önnur mál

 

Kaffiveitingar að loknum fundi.

Hvetjum alla til að taka virkan þátt í félagsstarfinu

                   

       Stjórn björgunarsveitarinnar Brákar, Borgarnesi.

 

Aðalfundarboð til útprentunar má sjá hér.


meira...