Um næstu helgi ætlum við í hestahópi að vera með æfingarhelgi að Hæl í Flókadal. Mæting er að Hæl á laugardaginn kl.10:30 og þá verður farið í ýmsar æfingar á hestum og án. Á sunnudaginn munum við fara saman í reiðtúr þar sem áhersla verður lögð á þverun vatnsfalla. Hægt verður að tjalda á staðnum og geyma hesta. Allir áhugasamir velkomnir að koma og taka þátt. Skráning og nánari upplýsingar hjá formanni Björgunarhesta Borgarfjarðar Jóhanni Pjetri á Hæl.
Til baka