Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FUNDIR
S
M
Þ
M
F
F
L
27
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

11
12
13
14
15
16
17

18
19
20
21
22
23
24

25
26
27
28
29
30
31

1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp 

Blástursaðferðin

 

Ef sjúklingur andar ekki þarf að byrja á því að tryggja að öndunarvegur sé ekki stíflaður (kanna hvort aðskotahlutur eða tunga hindri loftstreymi til lungna) og fjarlægja stíflu ef svo er og einnig þarf maður að vera viss um að æðasláttur sé til staðar, ef enginn æðasláttur finnst verður að beita hjartahnoði.

 

Ef slasaður andar ekki þá:

  1. Opna öndunarveg
  2. Dragið að ykkur hreint loft
  3. Lokið nefi sjúklings og blásið ákveðið inn um munn hans. Lokið munni hans ef blásið er í nef.
  4. Sjáið brjóstkassann lyftast, það sýnir að loft hefur komist í lungun.
  5. Lyftu höfði þínu frá andliti sjúklingsins og horfðu á brjóstkassann hníga á meðan þú dregur að þér loft.
  6. Endurtaktu þetta 12-15 sinnum á mínútu.  Mundu að draga að þér hreint loft á milli blástra
  7. Ef hinn slasaði er kornabarn, blástu þá varlega, munnfylli lofts er nóg til að fylla lungu barns. Hjá kornabörnum er blásið um munn og nef í einu.
6. nóvember 2008 18:47

Fundargerð aðalfundar Brákar

Borgarnesi 5. nóvember 2008

 

Aðalfundur Brákar

Fundargerð

 

 

 

  • Formaður setur fund.
  • Halla Kjartansdóttir skipuð sem fundarstjóri. Engar athugasemdir gerðar  við það.
  • Þorgerður  Bjarnadóttir skipuð sem fundarritari. Engar athugasemdir gerðar við það.
  • Þorgerður las upp skýrslu stjórnar.
  • Skýrslan samþykkt með smávægjilegum breytingum.
  • Guðrún gjaldkeri gerir grein fyrir ársreikningi Brákar. Spurningar bornar upp og Guðrún svara að bestu getu.
  • Ársreikningur samþykktur einróma af fundargestum.
  • Kosið í stjórn.

 

Erlendur Breiðfjörð Magnússon kjörin formaður Brákar en hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér næsta ár eða á næsta aðalfundi þann 1. apríl 2009.

 

  • Atkvæði greidd og talin. Þorgerður, Pétur, Ágeir og Guðrún kjörin nær einróma í stjórn, eitt atkvæði ógilt. Guðrún hefur líka ákveðið að gefa ekki kost á sér næsta ár eða á næsta aðalfundi þann 1. apríl 2009. Alls buðu sig fram tveir, en það er Kristján Jóhannes sem ekki náði kjöri.
  • Ólöf Kristín Jónsdóttir hættir í stjórn og er þakkað fyrir gott starf.
  • Opnað fyrir önnur mál.
  • Erlendur las upp bréf frá Sigurði Þorsteinssyni þar sem hann óskar eftir því að vera dregin úr bílaflokki og þar með vill hann leyfa yngri mönnunum að spreita sig.
  • Guðmundur Finnur þakkar Sigurði góð störf í bílaflokki og lýsti því yfir hve ánægður hann er með mætinguna á fundinn.
  • Allir voru sammála um að Sigurður yrði gerður umsjónamaður hússins og hann sæi þá um að fá fólk til að þrífa og þess háttar þegar þarf.
  • Halla fjallaði um nýliðakvöld sem verið er að planleggja og umsjónamenn unglingadeildar Brákar kynntu að þeir ætluðu sér að virkja eldri meðlimi sveitarinnar í að kenna unglingunum. Engar athugasemdir gerðar við það.
  • Vetrardagskrá kynnt og samþykkt.
  • Umræður opnaðar um ýmis minniháttar málefni.
  • Nýliðar og nýtt fólk í sveitinni kynnir sig og er boðið velkomið með viðeigandi vandræðalegu klappi.
  • Fundi slitið.

 

Boðið var upp á kaffi og kökur í lok fundar og var Sæmundi Sigmundssyni nágranna okkar boðið í kaffi ásamt vinkonu sinni, Röggu.            

                                                           

                                Þorgerður Erla Bjarnadóttir, fundarritari.

 


Til baka