|
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
apríl 2024
28. janúar 2011 14:53
Fótbrotinn maður á Heiðarhorni
Sunnudaginn 16. janúar barst tilkynning um að maður væri fótbrotinn í um 1000 metra hæð við Heiðarhorn, hæsta tind Skarðsheiðar.
Þarna var á ferð hópur nýliða og annara félaga úr HSSR. Hópurinn bjó um manninn og var hann m.a. settur í ökklalið á staðnum en læknir var með í för. Í framhaldi var sjúklingnum rennt og slakað niður brattar hlíðar Heiðarhorns, áleiðis niður í Skarðsdal og náði hópurinn að lækka sig með sjúklinginn um 160 metra í fjallinu áður en björgunarmenn úr byggð mættu hópnum. Vel gekk að flytja sjúklinginn niður Skarðsdalinn, og voru sérstakar hjólabörur notaðar til verksins sem létti verulega á flutningnum. Hált var og dimmt á fjallinu, en aðstæður að öðru leyti ágætar. Átta göngumenn fóru í útkallið frá Brák en í útkallið komu Björgunarsveitir af Akranesi, Borgarfirði og höfuðborgarsvæðinu, alls um 80 manns.
Sjá myndir frá ferð HSSR
Til baka
|
Heilræði
Skyndihjálp
Hjartaáfall
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.
Einkenni
- Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
- Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak.
- Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
- Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.
Skyndihjálp
- Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
- Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
- Hagræða honum í þægilega stöðu.
- Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
- Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.
Hjartakveisa Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku.
|
|