|
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
apríl 2024
14. mars 2016 19:45
Aðalfundarboð
Aðalfundur hjá Björgunarsveitinni Brák verður haldinn þriðjudaginn 22. mars 2016 kl 20:00 í Pétursborg.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: 1. Fundarsetning, skipan fundarstjóra og fundarritara. 2. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin. 3. Skýrsla stjórnar. 4. Reikningar lagðir fram. 5. Umræður. 6. Afgreiðsla skýrslu stjórnar og reikninga. 7. Kosningar. 8. Önnur mál.
Kaffiveitingar að loknum fundi
Til baka
|
Heilræði
Skyndihjálp
Hjartaáfall
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.
Einkenni
- Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
- Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak.
- Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
- Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.
Skyndihjálp
- Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
- Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
- Hagræða honum í þægilega stöðu.
- Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
- Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.
Hjartakveisa Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku.
|
|