Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR > Ferðasögur
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5

6
7
8
9
10
12

13
14
15
16
17
18

20
21
22
23
24
25
26

27
28
29
30
31
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp 

Blástursaðferðin

 

Ef sjúklingur andar ekki þarf að byrja á því að tryggja að öndunarvegur sé ekki stíflaður (kanna hvort aðskotahlutur eða tunga hindri loftstreymi til lungna) og fjarlægja stíflu ef svo er og einnig þarf maður að vera viss um að æðasláttur sé til staðar, ef enginn æðasláttur finnst verður að beita hjartahnoði.

 

Ef slasaður andar ekki þá:

  1. Opna öndunarveg
  2. Dragið að ykkur hreint loft
  3. Lokið nefi sjúklings og blásið ákveðið inn um munn hans. Lokið munni hans ef blásið er í nef.
  4. Sjáið brjóstkassann lyftast, það sýnir að loft hefur komist í lungun.
  5. Lyftu höfði þínu frá andliti sjúklingsins og horfðu á brjóstkassann hníga á meðan þú dregur að þér loft.
  6. Endurtaktu þetta 12-15 sinnum á mínútu.  Mundu að draga að þér hreint loft á milli blástra
  7. Ef hinn slasaði er kornabarn, blástu þá varlega, munnfylli lofts er nóg til að fylla lungu barns. Hjá kornabörnum er blásið um munn og nef í einu.
12. júlí 2009 20:13

Leitartækni og leitarhestaæfing

Að laugardagskvöldinu 11.júlí kom Soffía Sigurðardóttir úr

Björgunarfélagi Árborgar og fór yfir leitartækni með

leitarhestahópi þar sem mættir voru Arnar, Guðbjörn, Halla,

Heiða og Siggi Þorsteins, en aðrir félagar voru að sjálfsögðu

líka velkomnir. Eftir yfirferðina fór Soffía með sérlegri aðstoð 

Sigga Þorsteins að skoða svæði fyrir leitaræfingu, á meðan

var farið að ná í hrossin sem dreifð eru víða um Borgarfjörð.

 

Daginn eftir var...

haldin leitaræfing þar sem áhersla var lögð á knapa sem

leitarmenn, leitartækni og sporrakningar. Lagt var af stað

frá Pétursborg kl. 10:00 og var förinni heitið uppí Einkunnir

þar sem að Soffía var búin að fela hann Finn sem var týndur, 

drukkinn drengur í ástarsorg, og vísbendingar um ferðir hans.

Leitin tók sinn tíma enda svæðið nokkuð erfitt til leitar en 

Finnur (kraftgalli) fannst á endanum og allar vísbendingarnar.

Eftirá var farið yfir æfinguna og hún skoðuð ofan í kjölinn,

hvað gert var vel og hvað hefði betur mátt fara.

Nokkuð ljóst er að bæði menn og hestar lærðu alveg helling

af leitartækni-yfirferðinni og æfingunni. Soffíu og Sigga eru

færðar bestu þakkir fyrir frábæra helgi! Einnig vill

leitarhestahópur þakka eigendum fyrir afnot af hestakerrum,

hestagerði og kaffistofu.

 

Áhugasömum er bent á heimasíðu leitarhesta sem er: http://leitarhestar.123.is/ eða senda e-mail á

msar_iceland(hjá)yahoo.com


Til baka

Senda á Facebook