Áttun á vef: Skip Navigation Links
S
M
Þ
M
F
F
L
25
26
27
28
29
1
2

3
4
5
6
7
8
9

10
11
12
13
14
15
16

17
18
19
20
21
22
23

24
25
26
27
28
29
30

31
1
2
3
4
5
6

Fyrri mánuður
mars 2024
Næsti mánuður

Skaflasteik að hætti Trölla

 

Hvað þarf til að gera góða skaflasteik.

 

1. Vænt lambalæri, mjög vænt !!!!!
2. Nokkrar stórar kartöflur
3. Hrásalat og annað tilheyrandi meðlæti.
4. Stór poki af grillkolum og uppkveikilögur.
5. 1 flaska af góðu rauðvíni
Lærið búið að vera í búrinu í nokkra daga, kryddað síðan vel og vafið inn í álbréf áður en lagt er af stað í sleðaferð inn í hálendið.

Eldamennska .
Grafa svona 30 cm. Holu í snjóinn, holan fóðruð vel að innan með álbréfi.
Sturtað öllu úr kolapokanum og sprautað vel úr uppkveikilögnum yfir (ekki að spara löginn)
Kveikja svo í og þarf eldurinn helst að sjást vel úr byggð, þegar kolin grána er rétt að skella lærinu beint ofaná kolin, snúa lærinu síðan á 15 mínúta fresti.
Þegar lærið hefur brætt snjóinn það mikið að menn rétt ná því ætti það að vera tilbúið ca. 80 mínútur fer eftir því hverjir eru í mat.

Þegar maður er búin að flengjast daglangt á sleða þá getur engin skrautmatargerð á flottustu hótelum tekið þessu fram.


Gæti verið gott að fá nokkrar nýbakaðar lummur í desert,

ef þið hafið tíma stelpur.


 

Framundan