Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

Heilræði

Boðunarkerfi 

Skilgreiningar á forgangsskiptingu

 

F-1 Rauður

Forgangur 1 Rauður, er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í efsta forgang og sem lífsógn. Sjúkrabíll og/eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri. T.d. þar sem allt tiltækt björgunarlið væri með aðkomu, stóreldur, fjöldaslys eða einstaklingsslys með alvarlegum áverkum.

 

F-2 Gulur

Forgangur 2 Gulur er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í næst efsta forgang. Sjúkrabíll og /eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri en aðeins í atburði án lífsógnar.

 

F-3 Grænn

Forgangur 3 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin til afgreiðslu strax en án forgangs. Aðeins viðeigandi hluta björgunarliðs er kallaður, staðbundin aðgerð sem krefst hvorki forgangs eða fjölda manns.

1. mars 2010 11:36

Leitarhestaráðstefna heppnaðist vel

 Sunnudaginn 21.febrúar sl. var haldin leitarhestaráðstefna í Pétursborg á vegum Leitarhesta Borgarfjarðar (LB) um notkun hesta við leit og björgun. Að undirbúningi ráðstefnunnar komu einnig félagar úr Bjsv. Kili og Bjf. Árborgar. Var þetta opin ráðstefna þar sem farið var yfir mörg mál sem varða notkun hesta við leit og björgun. Alls mættu 16 manns sem komu úr Björgunarsveitunum Brák, Oki, Heiðari, Kili og Sigurgeir, Björgunarfélagi Árborgar og BHSÍ.

Farið var yfir helstu niðurstöður undirbúningshóps frá síðasta “allsherjarfundi” áhugasamra um málefnið. Anna Pedersen Ragnarsdóttir og Heiða Guðmundsdóttir tóku fyrir hæfniskröfur knapa sem björgunarmanns og hæfniskröfur hests, Eiríkur Theódórsson talaði um útbúnað, Halla Kjartansdóttir fjallaði um tryggingamál, Soffía Sigurðardóttir fjallaði um leitartækni og hugmyndir að æfingum. Sigurður Oddur Ragnarsson hestaferðafrömuður og járningameistari tók fyrir hestaferðalög, þjálfun f. ferðalög, útbúnað og járningar á ferðalögum, Edda Þórarinsdóttir dýralæknir fór yfir hrossasjúkdóma, slys og sjúkrabúnað fyrir hesta í ferðum. Svo fór Halla yfir erlenda staðla, hugmyndir um mótun verkefnis félaga leitarhesta um slysavarnir hestamanna og um væntanlegan fyrirlesara, T’mi Finkle, frá Ameríkunni í október. Fundarstjóri var Ragnar Frank Kristjánsson og kom hann ferskur inn eftir að hafa æft sig á Fræðaþinginu:-). Að lokum borðaði hópurinn saman eðalkvöldmat frá Gæðakokkum en Magnús yfirkokkur er einmitt félagi í Bjsv.Brák og LB. Punkta frá flestum fyrirlestrum, myndir af ráðstefnunni og margt fleira áhugavert má finna inni á síðu leitarhesta: http://leitarhestar.123.is .

 

Dagskráin framundan hjá Leitarhestum Borgarfjarðar:

23. mars – Fundur

3. eða 4. apríl - Hittast í reiðhöll og fara í þrautabraut. Páskakeppni.

20. apríl – Fyrirlestur um það hvernig á að gera hest “sprengjuheldan”. Julio?

18. maí - Fundur

29. eða 30. maí – Stór leitaræfing með gangandi fólki og hestum

15. júní – Fundur

9. – 11. júlí – Útileguhestaferð

 


Til baka

Senda á Facebook