Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

Heilræði

Björgunarmaður 

 

Framlag hvers og eins er hluti af heildinni og er því mjög mikilvægt!

7. nóvember 2009 22:23

Fer vel af stað!

Já það má með sanni segja að veturinn hjá Björgunarsveitini Brák hafi farið vel af stað. Fyrsti félagsfundurinn var haldinn 6. október s.l. og var mæting á hann með besta móti. Síðan þá hefur gengið á ýmsu hjá Brák.

 

 

 

 

Þetta er daðurdrósin sem lokkar veiðimenn til óbyggða!

 

 

Haldin hafa verið námskeið í leitartækni og aðgerðarstjórnun og farið var á námskeiðið Inflúensa og björgunarsveitir. Þessa helgi hefur Brák sem og aðrar sveitir á landinu staðið í fjáröflun með sölu á Neyðarkallinum. Gekk sala vonum framar og viljum við þakka öllum þeim sem styrktu okkur kærlega fyrir stuðninginn sem er vissulega vel þeginn!

Það sýndi sig líka hve annasamt er hjá sveitunum, þegar ræsa þurfti út björgunarsveitir á svæði 4 vegna týndrar rjúpnaskyttu síðdegis á laugardaginn. Allt fór betur en á horfðist og kom skyttan fram stuttu seinna heil á húfi.

 

Þó að veturinn hafi farið rólega af stað hjá Brák, hvað útköll varðar, mun þeim án efa fara fjölgandi eins og undanfarin ár.

Björgunarsveitin Brák vill því minna sérstaklega veiðimenn á að vera rétt búnir, með GPS og síma og að láta alltaf einhvern vita af ykkur.

Því það ætlar nú enginn að týnast!

 

Fyrir hönd Brákar,

Þorgerður Bjarnadóttir 


Til baka

Senda á Facebook
Schnillddarfrétt
- 8.11.2009 00:15:12
KJ
Verst við þennan blessaða fugl að hann skuli ekki vera góður á bragðið

EBM
- 8.11.2009 10:59:55 Hún er nú mjög góð á bragðið ef maður eldar hana rétt!
ÞEB