|
29
30
1
3
4
5
6
7
8
9
10
12
13
14
15
16
17
18
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
maí 2012
Heilræði
Skyndihjálp
Hjartaáfall
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.
Einkenni
- Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
- Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak.
- Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
- Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.
Skyndihjálp
- Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
- Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
- Hagræða honum í þægilega stöðu.
- Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
- Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.
Hjartakveisa Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku.
23. september 2009 21:27
Nýliðakynning Brákar
Nýliðakynning Björgunarsveitarinnar Brákar verður haldin fimmtudagskvöldið 24 sept. kl: 20.00 í húsi Björgunarsveitarinnar í Pétursborg, Brákarey.
Ef þú hefur áhuga á góðum félagsskap, fjölbreyttri útivist, ferðalögum og vilt láta gott af þér leiða, þá átt þú heima í hópnum.
Endilega komdu og vertu með!
Allir hjartanlega velkomnir! Til baka
|
|
|