Fundargerð aðalfundar Björgunarsveitarinar Brákar, 1. apríl 2009.
Borgarnesi 1. apríl 2009
Aðalfundur Brákar
Fundargerð
- Fráfarandi formaður setur fund.
- Snædís L. Bjarnadóttir skipuð sem fundarstjóri, engar athugasemdir.
- Þorgerður sett sem fundarritari, engar athugasemdir.
- Ritari las upp fundargerð síðasta aðalfundar og skýrslu stjórnar.
- Stuttar umræður um skýrslu stjórnar, var hún síðan samþykkt einróma.
- Formaður kosin, þar sem enginn bauð sig fram voru allir í kjöri, í fyrstu umferð fóru atkvæði svo: Pétur 8, Guðrún 1, Kristján Jóhannes 2, Halla 3, Erlendur 8 og Jakob 1, auðir og ógildir seðlar voru 2. Þar sem jafntefli kom upp á milli Erlendar og Péturs var kosið aftur á milli þeirra og fóru atkvæði svo: Pétur 12 og Erlendur 12, auðir og ógildir seðlar voru 1. Eftir stutta umræðu ákvað Erlendur, þó svo að hafa dregið sig í hlé, að taka ábyrgðina og var klappað fyrir því. Telst því Erlendur Breiðfjörð Magnússon kjörin formaður Brákar í 4 sinn.
- Þar sem Erlendur var kosin formaður aftur skoraði hann á Guðrúnu, sem ætlaði líka að draga sig í hlé, að bjóða sig aftur fram sem gjaldkera og tók hún því. Fundargestir klöppuðu fyrir því.
- Kosið í stjórn, aðeins einn nýr bauð sig fram í stjórn og telst því sjálfkjörin, það er Halla Kjartansdóttir. Auk hennar eru það Þorgerður Bjarnadóttir, Pétur Guðmunsson og Guðrún Kristjánsdóttir sem manna stjórnina.
- Gjaldkeri setti fram reikninga. Engar athugasemdir og þeir því samþykktir einróma.
- Gunna Kristjáns eldri, Jakob og Sæmundur Sigmundsson boðin velkomin á fundin.
- Opnað fyrir önnur mál.
- Fundur stjórna á sv. 4 ræddur, það er skýrsla formanns um þau mál.
- Halla kynnti starf unglingadeilarinnar í vetur og sagði frá því að hún hafi stofnað heimasíðu og væri komin með nafn, Litla-Brák.
- Ásgeir hélt stutta tölu og lét gjaldkeran fá reikning upp á tæpar 5 milljónir fyrir tveimur sexhjólum sem stjórn Brákar keypti í stjórnarheimsókn sinni til Reykjavíkur.
- Ásgeiri var afhendur blómvöndur fyrir góð störf í Brák, einnig fengu Guðrún og Erlendur blómvendi þar sem allt benti til þess að þau myndu hætta líka á þessum fundi.
- Erlendur las upp hugvekju til félaga Brákar.
- Nefnd til skipulags nýliðamála er skipuð Jakobi, Bjarna, Birni Óskari og Kidda Jóa.
- Fundi slitið.
- Boðið var upp á kaffiveitingar í lok fundar og gerðu gestir því góð skil.
(Sexhjólakaup Brákar voru aðeins 1. apríl gabb til gjaldkerans, ekki hefur sveitin fest kaup á slík tæki, enn allavega.)
Þorgerður Erla Bjarnadóttir, fundarritari.
Til baka