Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5

6
7
8
9
10
12

13
14
15
16
17
18

20
21
22
23
24
25
26

27
28
29
30
31
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp

Hjartaáfall


 
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.  

 

Einkenni 

  • Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
  • Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak. 
  • Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
  • Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.

 

Skyndihjálp

  • Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
  • Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
  • Hagræða honum í þægilega stöðu.
  • Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
  • Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.

 

Hjartakveisa
Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku. 

 

 

22. mars 2010 13:11

Vel heppnuð sigæfing

 Sunnudaginn 21. mars var haldinn sigæfing í Pétursborg og tókst hún í flesta staði vel ef undan er skilin mæting, en alls voru 4 á æfingunni þ.e. Eiríkur Þór, Þorkatla hans Eiríks, Pétur Guðmundss og Jóhannes B. Byrjað var á að fara yfir sigbúnað, hnúta og línur. Síðan voru settar upp línur í tækjageymslunni og m.a. prófað að júmma og síga. Pétur kynnti fyrir okkur notkun á I'd og setti upp dobblun til hífingar. Þvínæst var farið út í rokið og sigið í klettum við brúna út í Brákarey. Skoðaðar voru ýmsar bergtryggingar, en endað á að tryggja í Brák 3 þar sem lítið hald var í eyjunni...  Í lokin var rætt um að halda fljótlega framhaldsæfingu þar sem prófaðar verði hífingar með doblun, slökun með I'd og ýmistlegt spennandi. Eru Brákarfélagar hvattir til að mæta.

Svo eru hér nokkrar myndir af æfingunni.

 


Til baka

Senda á Facebook