Sælir allir okkar elskulegu félagar og aðrir aðdáendur!
Nú er farið að hausta og rétta- og skotveiðitímabilið gengið í garð sem þýðir það að fólk fer að streyma til fjalla í leit að útrás fyrir uppsafnaða gremju sumarsins. En við hjá Brák fögnum hausti og vetri því þá fer starfið hjá okkur að lifna við og sólbrúnir félagar á sandölum ganga fylltu liði í Brákareyna og undirbúa sig fyrir komandi fjör!
Vetrarstarfið byrjar fyrsta miðvikudag októbermánaðar sem mun vera 5. október n.k. með fyrsta félagsfundi sveitarinnar en þar er kynnt til liðs nýverkaskipt stjórn og farið yfir skipulag komandi mánaða, en að sjálfsögðu er fundurinn boðaður út með fyrirvara og boðið uppá kaffi eftir fundinn!
Ekki ætla ég að leiða lesendur, ef þeir eru nokkrir, með því að hafa þessa tölu lengri en ég vil benda á að hér í fréttinni fyrir neðan er fundargerð aðalfundar 2011.
En svona til að létta skapið í skammdeginu eru hér nokkrar myndir frá seinasta vori og sumri.
Eigið góðar stundir!




P.s. Allar ábendigar og/eða tillögur sem varða heimasíðuna eða annað tengt bjsv. Brák eru velþegnar með pósti á m167@visir.is
Til baka